All official European Union website addresses are in the europa.eu domain.
See all EU institutions and bodiesGerðu eitthvað fyrir plánetuna okkar, prentaðu einungis þessa síðu ef þú þarft þess. Jafnvel lítil aðgerð getur haft gríðarleg áhrif ef milljónir manna gera hið sama!
Press Release
Samfelld og hröð útþensla borga í Evrópu ógnar öllu jafnvægi, bæði í umhverfismálum, á félagslega sviðinu og á sviði efnahagsmála, segir í nýrri skýrslu sem út kemur í
Kaupmannahöfn í dag á vegum Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA).
Í skýrslunni, sem heitir ‘Borgir í Evrópu þenjast út – umhverfið er í hættu en íbúarnir ugga ekki að sér’, kemur fram að mörg þeirra umhverfisvandamála sem Evrópubúar
standa frammi fyrir stafa af mikilli útþenslu borganna. Hnattræn efnahagsumsvif, samgöngukerfi sem liggja þvert á landmæri, víðtækar félagslegar, efnahagslegar og
lýðfræðilegar breytingar ásamt mismunandi lagasetningu landanna um skipulagsmál, eru meðal þess sem mestum breytingum veldur á borgarumhverfi. Þörf er á sameiginlegri
stefnumörkun ESB landanna til að stjórna skipulagsmálunum og samhæfa þau, segir ennfremur í skýrslunni.
Hömlulítil útþensla borga á sér stað þegar landsvæði eru skert og lögð undir borgir hraðar en fjölgun íbúa segir til um. Meira en fjórðungur alls lands í ESB löndunum er
þegar undir borgum segir í skýrslunni. Evrópubúar verða eldri en áður og margir búa einir, en því fylgir léleg nýting á rými. Við ferðumst meira og neyslan hefur aukist.
Milli 1990 og 2000 var byggt á meira en 800 000 hekturum lands í Evrópu. Það er þrefalt flatarmál Luxemburg. Ef þessi þróun heldur áfram tvöfaldast borgarsvæðin á rúmri
öld.
Borgir í mikilli útþenslu þurfa meiri orku, meiri umferðarmannvirki og mikið land. Náttúrlegt umhverfi skaðast og losun gróðurhúsalofttegunda vex. Meðal afleiðinganna má
nefna loftlagsbreytingar og stóraukin loft- og hávaðamengun. Útþenslan hefur því bein, neikvæð áhrif á lífsgæði þeirra sem búa í borgum og umhverfis þær.
“Útþensla borganna tengist breyttum lifnaðarháttum og neyslumynstri fremur en fólksfjölgun, og kröfur um meira land verða sífellt háværari, bæði vegna húsnæðisþarfar,
matvælaframleiðslu, samgangna og ferðamennsku. Búland umhverfis borgir er oft tilttölulega verðlítið og því er lítið viðnám gegn þrýstingi ofangreindra þátta”, sagði
Jacqueline McGlade, prófessor og framkvæmdastjóri EEA.
“Tilteknir byggðasjóðir Evrópusambandsins (EU Cohesion and Structural Funds), sem hafa mikil áhrif á þróunina í Evrópu, ýta víða undir útþenslu borga svo að um munar.
Áhrif framlaga úr sjóðum skipta miklu máli þegar ESB og aðildarríki þess setja saman fjárlög ESB ár hvert. Einkum og sér í lagi nýju aðildarríkin munu sjá verulegar
breytingar. Þau þurfa leiðbeinandi reglur svo að þau komist hjá þeim skakkaföllum á sviði umhverfismála sem skyndileg framlög úr sjóðum kunna að hafa í för með sér.” sagði
prófessor McGlade að lokum.
Í skýrslunni er að finna tilviksrannsóknir frá sjö borgum á ýmsum stöðum í Evrópu þar sem íbúarnir hafa á undanförnum 50 árum búið við misgott borgarskipulag, sumstaðar
ágætt, síðra annarsstaðar. Hins vegar er lögð á það áhersla í skýrslunni að hömlulítil útþensla borga sé ekki bundin við nein sérstök svæði því hennar gæti í næstum öllum
borgum Evrópu. Í skýrslunni er mælt með aðgerðum og stefnumörkun svo að takast megi að hemja þróunina.
Skýrslan var unnin af EEA og Sameiginlegri rannsóknamiðstöð Framkvæmdastjórnar Evrópu (JRC).
Skýrsluna er hægt að nálgast á: Borgir í Evrópu þenjast út – umhverfið er í hættu en
íbúarnir ugga ekki að sér
EEA Briefing 4/2006 - Útþensla borga í Evrópu
EEA hefur aðsetur í Kaupmannahöfn. Það er markmið stofnunarinnar að stuðla að mikilvægum og mælanlegum framförum í umhverfismálum Evrópu með því að koma tímabærum og
hnitmiðuðum, viðeigandi og öruggum upplýsingum á framfæri við stefnumótendur og allan almenning.
Brendan Killeen
Press Officer
Sími: +45 33 36 72 69
Farsími: +45 23 68 36 71
Tölvup.: brendan.killeen@eea.europa.eu
Marion Hannerup
Head of Communications and Corporate Affairs
Sími: +45 33 36 71 60
Farsími: +45 51 33 22 43
Tölvup.: marion.hannerup@eea.europa.eu
For references, please go to https://www.eea.europa.eu/is/pressroom/newsreleases/borgir-i-evropu-feenjast-ut-2013-umhverfid-er-i-hettu-en-ibuarnir-ugga-ekki-ad-ser or scan the QR code.
PDF generated on 08 Dec 2024, 05:12 AM
Engineered by: Vefteymi EEA
Software updated on 26 September 2023 08:13 from version 23.8.18
Software version: EEA Plone KGS 23.9.14
Skjalaaðgerðir
Deila með öðrum