næsta
fyrri
atriði

News

Ljósmyndasamkeppni um áhrif loftslagsbreytinga og lausnir við þeim

Breyta tungumáli
News Útgefið 18 Aug 2021 Síðast breytt 18 Aug 2021
1 min read
Photo: © Paul Skorupskas on Unsplash
Loftslagsbreytingar hafa áhrif á samfélög okkar og umhverfi með margvíslegum hætti. Til að taka á loftslagsbreytingum verðum við að draga úr útblæstri til að minnka verstu áhrif þeirra og laga okkur að þeim sem við getum ekki stöðvað. Frá og með deginum í dag hvetur ljósmyndasamkeppni Umhverfisstofnunar Evrópu „Climate Change PIX“ þátttakendum að mynda hvernig loftslagsbreytingar líta út í Evrópu og hvernig við bregðumst við þeim.

Nýja ljósmyndasamkeppni EEA Climate Change PIX miðar að því að fanga allt það sem er í kring um okkur: breytingar á loftslagi og viðbrögð okkar við þeim. Sendu okkur bestu myndirnar þínar fyrir 1. ágúst 2021 í fjórum keppnisflokkum:

1. Loftslagsbreytingar hafa áhrif á náttúruna

Hvernig hafa loftslagsbreytingar áhrif á umhverfi okkar? Getur þú myndað breytingar á lofti, landi, vatni eða dýralífi?

2. Loftslagsbreytingar hafa áhrif á samfélagið

Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á lifnaðarhætti okkar? Getur þú sýnt hvernig þær hafa áhrif á heilsu, lifnaðarhætti, manngert umhverfi eða hagkerfi?

3. Samfélagslausnir á sviði loftslagsbreytinga

Við erum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og laga okkur að loftslagsbreytingum með aðgerðum á einstökum stöðum yfir í aðgerðir sem ná yfir alla Evrópu. Getur þú sýnt þetta með ljósmyndunum þínum?

4. Einstaklingsbundnar aðgerðir á sviði loftslagsbreytinga

Fólk leitast við að draga úr kolefnislosun í lífi sínu og grípa til aðgerða til að ráða við öfgafullt veðurfar. Hvernig lýsir þetta sér þar sem þú býrð?

Upplýsingar um Climate Change PIX

Samkeppnin er opin borgurum frá 32 meðlimalöndum EEA og samstarfslöndunum sex, þar á meðal 27 aðildarríkjum ESB, Íslandi, Liechtenstein, Noregi, Sviss, Tyrklandi, Albaníu, Bosníu og Hersegóvínu, Kosóvó, Svartfjallalandi, Norður-Makedóníu og Serbíu. Allir þátttakendur verða að vera 18 ára eða eldri. Frekari upplýsingar um reglur keppninnar og þátttöku á síðu „Climate Change PIX“.

Vinningshafar í keppniflokkunum fjórum hljóta peningaverðlaun upp á 1.000 evrur. EEA mun einnig veita sérstök æskulýðsverðlaun fyrir bestu myndina frá ungum einstaklingi og „almenningsverðlaun“ þar sem valið verður úr öllum þeim sem komast í úrslit með netkosningu.

EEA mun tilkynna um sigurvegara haustið 2021.

Permalinks

Geographic coverage

Temporal coverage