næsta
fyrri
atriði

Um líffræðilegan fjölbreytileika

Page Síðast breytt 31 Aug 2016
This page was archived on 31 Aug 2016 with reason: Content is outdated
Líffræðilegur fjölbreytileiki styður fjölbreytni gena, tegunda og vistkerfa sem mynda líf á jörðinni. Við erum núna stöðugt að verða vitni af tjóni á líffræðilegum fjölbreytileika, sem hefur djúpstæð áhrif á náttúru heimsins og velferð manna. Megin örsökin eru breytingar á náttúrulegum búsvæðum. Þetta er sökum öflugs landbúnaðarkerfis, bygginga, vinnsla hráefna úr jörðu, ofnýting á skógum, höfum, fljótum, stöðuvötnum og jarðvegum, innrás framandi tegunda, mengun og- í sívaxandi mæli- hnattrænar loftlagsbreytingar. Evrópa hefur sett sér markmið um að draga úr missi á líffræðilegum fjölbreytileika fyrir 2010. Nýlegar EEA möt sýna að án tölvuverðar auka stefnuaðgerða, er ólíklegt að þetta markmið muni nást.

Mannkynið er sjálft hluti af líffræðilegum fjölbreytileika og tilvera okkar væri óhugsandi án þess. Gæði lífs, efnahagsleg samkeppnishæfni, atvinna og öruggi reiða sig öll á þennan náttúrulega höfuðstól. Líffræðilegi fjölbreytni er nauðsynleg fyrir ,,vistkerfa þjónustu", þ.e. þjónustu sem náttúran veitir: loftlagsstjórnun, vatn og loft, jarðvegsfrjósemi og framleiðslu á mat, eldsneyti, trefjum og lyf. Það er nauðsynlegt til að viðhalda langtíma hagkvæmni landbúnaðar og fiskveiðum, og er grunnurinn á mörgum iðnaðarferlum og framleiðslu á nýjum lyfjum.

Í Evrópu, hefur mannleg starfsemi mótað líffræðilega fjölbreytileika allt frá útbreiðslu á landbúnaði og dýrabúskap fyrir 5000 árum síðan. Landbúnaðar og iðnaðarbyltingar leiddu til dramatískar og hraðari breytingar á landnotkun, eflingar á landbúnaði, þéttbýlisvæðingu og fráhvarf af jörðum. Þetta hefur leitt til hruns á mörgum verklögum (t.d. hefðbundna landbúnaðaraðferðir) sem hjálpuðu viðhalda landsvæðum auðugum af líffræðilegum fjölbreytileika.

Neysla Evrópu á mann og úrgangsframleiðsla þýðir að áhrif okkar á vistkerfi nær vell út fyrir heimsálfuna okkar. Evrópskir lífstílar reiða sig mjög á innflutning á auðlindum og vörur frá allstaðar í heiminum, sem oft hvetja til ósjálfbæra nýtingu á náttúrulegum auðlindum. Þetta leiðir til tap á líffræðilegum fjölbreytileika sem á móti skemmir náttúrulegan höfuðstól auðlinda sem félagsleg og efnahagsleg þróun byggðir á.

Það getur ekki verið ilgangur sem er meira hvetjandi heldur en að byrja tíma endurreisnar, flétta á ný saman dásamlega fjölbreytni lífs sem er enn í kringum okkur.

Edward O. Wilson, ,,Fjölbreytni Lífs", 1992

Tjón á líffræðilegum fjölbreytileika er óumflýjanlega tengt niðurbroti á vistkerfaþjónustu sem styður líf á jörðinni. 2005 Áþúsunda vistkerfamat mat 24 vistkerfaþjónustur í heiminum, og komst að því að 15 af þeim hafa brotnað niður, sem hefur áhrif á fiskveiðar, timburframleiðslu, vatnsbirgðir, úrgangsmeðhöndlun og afeitrun, vatnshreinleika, náttúrulega hættuvörn og stjórnun á loftgæði. EEA 2005 skýrsla um stöðu og hörfur og fjórða samevrópska matið sitt sýnir að ESB er ekki að taka neinum sýnilegur framförum í átt að 2010 markmiðunum um að draga úr tjóni á líffræðilegum fjölbreytileika.

Permalinks

Skjalaaðgerðir