You are here: Home Umhverfisteikn 2011 Hnattrænn meginstraumur jarðar 2050 Ný skipan heimsmála
Personal tools

Ný skipan heimsmála

Change language
Last modified: Sep 19, 2011
Völd eru að færast til í heiminum. Ekkert eitt risaveldi hefur lengur undirtökin og svæðisbundnar valdablokkir verða stöðugt mikilvægari, efnahagslega og diplómatískt. Eftir því sem lönd jarðar verða háðari hvert öðru og verslun eflist, hagnast Evrópumenn ef þeir geta bætt nýtingu auðlinda og styrkt þekkingarhagkerfið. Með þeim tilfærslum valda sem búast má við í framtíðinni kann að draga úr hnattrænum áhrifum ESB. Í ljósi nýlegra breytinga í alþjóðastjórnmálum verður það mikilvægt verkefni Evrópumanna að finna út hvernig þeir geti áfram ræktað hagsmuni sína á hinu alþjóðlega sviði.

Af hverju skiptir þessi alþjóðlega tilfærsla valda þig máli?

Þegar lönd vaxa tiltölulega hratt eflast þau oft að efnahagslegum völdum vegna þess að framleiðsla þeirra og neytendamarkaðir fara stækkandi. Þau kunna að beita þeim völdum í alþjóðlegum samningaviðræðum um hagræn efni (svo sem um viðskiptahindranir og framleiðslustaðla). En þau geta einnig notað völdin á öðrum sviðum svo sem í viðræðum um umhverfismál.

Auðlindirnar sem knýja hagkerfi ríkja hafa einnig áhrif á hið alþjóðlega valdajafnvægi. Ný hagkerfi sem búa yfir mikilvægum auðlindum geta nýtt þær til þess að auka samkeppnishæfni sína og áhrif, einkum í ljósi ójafnrar dreifingar auðlinda á jörðinni. Til dæmis er talið að meira en helmingur heimsbirgðanna af liþíni, málmi sem er sem stendur nauðsynlegur fyrir tvinn- og rafmagnsbíla, sé að finna í Bólivíu.

Áætlað er að heimsnotkunin á neódýmíni, sem er nauðsynlegt efni fyrir ýmis konar leysigeislatækni, fjórfaldist á næstu 30 árum. Þetta frumefni finnst aðeins í Kína í umtalsverðu magni. Vöxtur tengdra atvinnugreina verður nærri alfarið háður Kína og framleiðslugetu þar. Afleiðingarnar, bæði fyrir ríkin sem búa yfir slíkum auðlindum og hagkerfin sem eru háð innflutningi, verða verulegar.

Mynd 1: Valin hráefni

Af hverju skiptir harðnandi samkeppni um auðlindir jarðar Evrópumenn máli? Aðgangur að náttúruauðlindum hefur úrslitaþýðingu fyrir framleiðsluiðnað Evrópu. Evrópa er tiltölulega snauð að auðlindum og þarf því að flytja inn stóran hluta þeirra hráefna sem hún þarfnast.

Til frekari upplýsinga sjá: Hnattrænir meginstraumar: harðnandi hnattræn samkeppni um auðlindir: www.eea.europa.eu/soer/europe-and-the-world/megatrends

Mynd 1: Valin hráefni
Document Actions
Athugasemdir varðandi þýðinguna
Vinsamlegast hjálpið okkur að auka gæði þýðingarinnar
Sign up now!
Get notifications on new reports and products. Currently we have 33703 subscribers. Frequency: 3-4 emails / month.
Notifications archive
Follow us
 
 
 
 
 

This page was translated by the Translation Centre for the Bodies of the European Union (CdT)

European Environment Agency (EEA)
Kongens Nytorv 6, 1050, Copenhagen K, Denmark.
Phone: +45 3336 7100