You are here: Home Umhverfisteikn 2011 Hnattrænn meginstraumur jarðar 2050 Mengun – Aukin notkun kemískra efna
Personal tools

Mengun – Aukin notkun kemískra efna

Change language
Last modified: Sep 19, 2011
Sem stendur eru flest kemísk efni framleidd í svokölluðum „þróuðum löndum“, en framleiðslan eykst meira en tvöfalt hraðar á Indlandi, í Kína, Brasilíu, Suður-Afríku og Indónesíu. Því er spáð að fjárhagsleg hlutdeild þeirra í heimsframleiðslu kemískra efna hækki í u.þ.b. 30% árið 2020 og nærri 40% árið 2030.

Af hverju skiptir aukin notkun kemískra efna þig máli?

Mögulegar afleiðingar hnattrænna mengunarstrauma eru m.a. frekari áhrif á heilsu manna og vistkerfa. Óöruggt drykkjarog baðvatn og menguð matvæli, bæði evrópsk og innflutt, valda beinni hættu fyrir Evrópubúa. Hættur kunna einnig að tengjast vaxandi innflutningi kemískra efna fyrir milli- og lokastig iðnframleiðslu. Í Evrópu er óbundið köfnunarefni sérstaklega áberandi vandamál í Eystrasalti, þar sem ástand umhverfismála er þegar slakt.

Mynd 5: Framleiðsla kemískra efna

Áætlað er að 70.000–100.000 kemísk efni séu framleidd í miklu magni, þ.e. yfir einni milljón tonna á ári. OECD-löndin eru stærstu framleiðendur kemískra efna, en framleiðslan eykst meira en tvöfalt hraðar á Indlandi, í Kína, Brasilíu, Suður-Afríku og Indónesíu.

Frekari upplýsingar má sjá undir: Hnattrænir meginstraumar: aukið umhverfismengunarálag: www.eea.europa.eu/soer/europe-and-the-world/megatrends

Mynd 5: Framleiðsla kemískra efna
Document Actions
Athugasemdir varðandi þýðinguna
Vinsamlegast hjálpið okkur að auka gæði þýðingarinnar
Sign up now!
Get notifications on new reports and products. Currently we have 33703 subscribers. Frequency: 3-4 emails / month.
Notifications archive
Follow us
 
 
 
 
 

This page was translated by the Translation Centre for the Bodies of the European Union (CdT)

European Environment Agency (EEA)
Kongens Nytorv 6, 1050, Copenhagen K, Denmark.
Phone: +45 3336 7100