You are here: Home Umhverfisteikn 2011 Hnattrænn meginstraumur jarðar 2050 Líf í borgvæddum heimi
Personal tools

Líf í borgvæddum heimi

Change language
Last modified: Sep 19, 2011
Vaxandi þéttbýli þýðir trúlega vaxandi neyslu og auðlegð fyrir marga. En það þýðir einnig meiri fátækt fyrir þá sem eiga undir högg að sækja fyrir. Slök lífskjör í þéttbýli og þær umhverfis- og heilsuhættur sem þeim fylgja gætu haft áhrif á öll svæði jarðar, þar með talið Evrópu.

Af hverju skiptir þéttbýlisvæðing þig máli?

Hönnun og stjórnsýsla þéttbýlissvæða, einkum í Suðaustur-Asíu, mun hafa mikil áhrif á hnattræna losun gróðurhúsalofttegunda og eftirspurn eftir jarðargæðum. Eftir að borg hefur einu sinni verið byggð verður henni trauðla breytt að ráði. Íbúarnir laga sig að kringumstæðunum og lífsháttum þeirra verður heldur ekki auðveldlega breytt. Á mörgum stöðum í þróunarheiminum er hætta á að borgir læsist inni í orku- og hráefnafreku mynstri þéttbýlisþróunar marga áratugi fram í tímann.

Í mikið samtengdum heimi munu breytingar á þéttbýlismyndun og tengd neyslumynstur aðallega hafa óbein áhrif í Evrópu. Meðal mögulegra áhrifa eru breytingar á landnotkun í Evrópu vegna harðari samkeppni um auðlindir og sú ógn að sjúkdómar þróist og dreifist um allan heim.

Mynd 6: Þróun þéttbýlis

Í fyrsta skipti í sögunni búa yfir 50% mannkyns í þéttbýli. Árið 2050 er áætlað að nálega 70% fólks búi í þéttbýli (UNDESA, 2010). Lýðfræðingar áætla að árið 2050 muni yfir 50 % mannkyns búa í Asíu.

Frekari upplýsingar má sjá undir: Hnattrænir meginstraumar: líf í borgvæddum heimi: www.eea.europa.eu/soer/europe-and-the-world/megatrends

Mynd 6: Þróun þéttbýlis
Document Actions
Athugasemdir varðandi þýðinguna
Vinsamlegast hjálpið okkur að auka gæði þýðingarinnar
Sign up now!
Get notifications on new reports and products. Currently we have 33703 subscribers. Frequency: 3-4 emails / month.
Notifications archive
Follow us
 
 
 
 
 

This page was translated by the Translation Centre for the Bodies of the European Union (CdT)

European Environment Agency (EEA)
Kongens Nytorv 6, 1050, Copenhagen K, Denmark.
Phone: +45 3336 7100