You are here: Home Umhverfisteikn 2011 Hnattrænn meginstraumur jarðar 2050 Breytileg sjúkdómamynstur
Personal tools

Breytileg sjúkdómamynstur

Change language
Last modified: Sep 19, 2011
Möguleikinn á smiti nýrra, nýframkominna og endurframkominna sjúkdóma, slysum og nýjum farsóttum vex með auknum hreyfanleika fólks og varnings, loftslagsbreytingum og fátækt.

Heilsa er lykilatriði í mannlegri þróun og við lítum í vaxandi mæli á umhverfið sem lykilþátt í heilsu manna. Á hnattræna vísu hefur heilsufar farið batnandi síðustu áratugi, í takt við auknar lífslíkur. Hinsvegar dreifist sjúkdómabyrðin ójafnt meðal íbúanna og er t.d. breytileg eftir kyni og félagslegri og efnahagslegri stöðu.

Næstu 50 ár munu hnattrænir meginstraumar í heilbrigðismálum áfram hafa beina og óbeina þýðingu fyrir stefnumótendur, einkum með því að hvetja til fjárfestinga í viðbrögðum gegn nýjum sjúkdómum og farsóttum.

Af hverju skipta hnattræn heilsumynstur þig máli?

Heilsufarsáhrif geta verið bein. Hættan á smiti nýrra, nýframkominna og endurframkominna sjúkdóma, slysum og nýjum farsóttum eykst með hnattvæðingu (t.d. fyrir tilstilli ferðalaga og viðskipta), breytingum á íbúasamsetningu (svo sem flutningum milli landa og öldrun) og fátækt.

Vaxandi ónæmi gegn sýklalyfjum og öðrum lyfjum og vanræksla gagnvart mörgum hitabeltissjúkdómum valda einnig áhyggjum, bæði í þróuðum löndum og þróunarlöndum.

Tækni getur komið að miklu gagni fyrir framfarir í heilbrigðismálum. Hún getur einnig auðveldað landfræðilegt eftirlit með heilsumynstrum og gert kleift að kortleggja og greina landfræðileg sjúkdómsmynstur sem mönnum hefði ella sést yfir.

Mynd 2: Heilbrigðismál, malaría árið 2050

Plasmodium falciparum er sníkill sem veldur malaríu í mönnum. Hann berst með moskítóflugum. Breytingar á loftslagi og landnotkun gætu valdið því að moskítóflugan dreifist til nýrra svæða og flytji malaríu með sér en hún gæti einnig dáið út á svæðum þar sem hún er nú. Svæðin þar sem flugan víkur og þar sem hún ryður sér til rúms eru nokkurn veginn jafnstór og hafa svipaðan íbúafjölda (u.þ.b. 400 milljónir á hvoru svæði).

Mynd 2: Heilbrigðismál, malaría árið 2050
Document Actions
Athugasemdir varðandi þýðinguna
Vinsamlegast hjálpið okkur að auka gæði þýðingarinnar
Sign up now!
Get notifications on new reports and products. Currently we have 33703 subscribers. Frequency: 3-4 emails / month.
Notifications archive
Follow us
 
 
 
 
 

This page was translated by the Translation Centre for the Bodies of the European Union (CdT)

European Environment Agency (EEA)
Kongens Nytorv 6, 1050, Copenhagen K, Denmark.
Phone: +45 3336 7100