Að bæta loftgæði í Evrópu: Umhverfisteikn 2013 leggur áherslu á loftgæði í Evrópu. Í útgáfu þessa árs er reynt að útskýra núverandi ástand loftgæða í Evrópu, hvaðan þau koma, hvernig loftmengunarefni myndast og hvernig þau hafa áhrif á heilsu og umhverfi. Það er einnig gefið yfirlit yfir það á hverju við byggjum þekkingu okkar á loftgæðum, og hvernig við tökum á loftmengun með fjölbreytilegri stefnumörkun og aðgerðum.
Umhverfisstofnun Evrópu (EE A) gefur út
Umhverfisteikn á hverju ári, sem veitir
yfirlit yfir málefni sem eru áhugaverð fyrir
umhverfisumræðuna og sem höfða til
almennings á komandi ári.
Umhverfisteikn 2012 sameinar umfjöllun um
umhverfismálefni eins og sjálfbærni, grænt
hagkerfi, vatn, úrgang, matvæli, stjórnun og
miðlun þekkingar. Tímaritið er undirbúið í
samhengi við ráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna
um sjálfbæra þróun – í Ríó 2012.
Á þessu ári gefur Umhverfisteikn þér yfirlit
yfir hvernig neytendur, framsækin fyrirtæki
og stjórnmálamenn geta náð árangri með því
að nota sameiginlega ný tæknileg verkfæri
– allt frá fjarkönnun til umræðuvettvangs
gegnum netið. Ritið stingur einnig upp
á skapandi og skilvirkum lausnum til að
varðveita umhverfið.
Þetta árið fara Merki með okkur í ferðalag þar sem fylgt verður leiðum vatnsins frá jöklum Alpafjalla til sífrera Norðurskautssvæðanna, og óshólma Gangesfljóts. Við ferðumst til kunnuglegra og fjarlægra staða og lítum á það hvernig við getum endurskapað tengsl okkar við nauðsynlega þætti hversdagslífsins: vatnið, jarðveginn, loftið og dýr þau og plöntur sem saman mynda hið fjölbreytilega lífríki á jörðinni.
Skjalaaðgerðir
Deila með öðrum