Græn ráð
- Bulgarian (bg)
- Czech (cs)
- Danish (da)
- German (de)
- Greek (el)
- English (en)
- Spanish (es)
- Estonian (et)
- Finnish (fi)
- French (fr)
- Hungarian (hu)
- Icelandic (is)
- Italian (it)
- Lithuanian (lt)
- Latvian (lv)
- Dutch (nl)
- Norwegian (no)
- Polish (pl)
- Portuguese (pt)
- Romanian (ro)
- Slovak (sk)
- Slovenian (sl)
- Swedish (sv)
- Turkish (tr)
-
Gættu þess að fá næga hreyfingu!
—
Jul 15, 2008
- Í stað þess að aka er ráðlegt að ganga, hjóla eða fara með strætisvagni. Með því móti bætir þú heilsuna en, að auki dregur þú úr umferð, loftmengun, hávaða og dregur úr slysahættu.
-
Þarftu að bregða þér frá til að útrétta eitthvað?
—
Jul 15, 2008
- Bílar menga meira á stuttum leiðum því þá er vélin enn köld. Þú ættir að ganga eða hjóla í stað þess að aka.
-
Slepptu ekki reglulegu eftirliti með bílnum.
—
Jul 15, 2008
- Láttu athuga afgasið frá bílvélinni reglulega. Hvarfakútar þurfa reglulegt viðhald.
-
Hvernig ferðu í vinnuna?
—
Jul 15, 2008
- Hugleiddu hvort ekki væri betra að sameinast um bíl eða almenningsvagna í stað eigin bíls.
-
Hugsaðu þig vel um áður en þú kaupir nýjan bíl.
—
Jul 15, 2008
- Það gæti verið betra að nota annan ferðamáta í stað þess að eiga bíl sem bara er notaður til helgarferða.
-
Reiðhjólum fylgja hvorki gróðurhúsalofttegundir né mengun
—
Jul 15, 2008
- og því eru þær sá ferðamátinn sem minnst mengar.
-
Hagnýttu þér sendil á reiðhjóli!
—
Jul 15, 2008
- Ef þú rekur fyrirtæki og sendir póst og böggla reglulega innanbæjar, ættir þú að hagnýta þjónustu sendlaþjónustu. Reiðhjól stöðvast ekki í umferðinni, komast fljótt á áfangastað og draga úr loftmengun í þéttbýli.
-
Veistu að þú getur dregið úr loftmengun með því að endurnýta sorp?
—
Jul 15, 2008
- Með því að senda gler, pappír, rafhlöður, vélarolíu og áldósir í endurnýtingu er hægt að minnka magn sorps sem fer í brennslu um allt að 70%.
-
Skildu bílinn eftir heima og farðu með almenningsvagni ef mjög heitt er í veðri.
—
Jul 15, 2008
- Afgas bíla hvarfast við önnur efni fyrir tilstilli sólarljóss og hita. Þannig verða til mengandi lofttegundir eins og veðrahvolfsóson, sem er uppistaðan í loftmengun og ljósefnafræðilegu "smoggi", en það getur gert fólki erfitt um andardrátt.
-
Hugsaðu þig vel um áður en þú kaupir SUV-bíl
—
Jul 15, 2008
- Auk þess sem SUV-bílar eru mjög dýrir í rekstri þurfa þeir mjög mikið eldsneyti. Þeir gefa frá sér helmingi meira kolmónoxíð, kolvatnsefni og köfnunarefnisoxíð en venjulegir fólksbílar. Þessi efni auka loftmengun og hnattræna hlýnun.
-
Framboð hreins vatns er takmarkað!
—
Jul 15, 2008
- Um 97,5% alls vatns á jörðinni er sjór. Afgangurinn, sem er aðeins 2,5%, er ferskt vatn. Af því eru rúmlega tveir þriðju bundnir í jöklum og heimsskautaís. Það sem þá er eftir að ófrosnu, fersku vatni er fyrst og fremst grunnvatn, en aðeins ofurlítið hlutfall er í ám, vötnum og í loftinu.
-
Skrúfaðu fyrir vatnið!
—
Jul 15, 2008
- Gættu þess að sóa ekki vatninu þegar þú burstar tennurnar eða rakar þig. Með því móti sparast 10 lt. vatns í hvert skipti.
-
Skolaðu ávexti og grænmeti í vatnsskál fremur en í rennandi vatni.
—
Jul 15, 2008
- Þannig sparast vatn og þú sparar meira með því að vökva pottaplönturnar með vatni sem gengur af.
-
Úr lekum krana getur komið meira en einn lítri af vatni á klukkutíma.
—
Jul 15, 2008
- Vatnið fyllir baðkar á einni viku. Drykkjarvatnið er dýrmætt og það verður að fara sparlega með það!
-
Það borgar sig að setja upp vatnsmæli til að fylgjast með neyslunni.
—
Jul 15, 2008
- Þeir sem hafa vatnsmæla fara betur með vatnið og spara peninga um leið.
-
Ertu þyrst+B43ur?
—
Jul 15, 2008
- Fylltu könnu og settu í kæliskápinn frekar en að láta renna í hvert skipti þar til vatnið er nógu kalt.
-
Engin ástæða er til að sóa vatni.
—
Jul 15, 2008
- Sjóddu ekki meira vatn en þarf fyrir bolla af kaffi eða tei.
-
Farðu í stutt sturtubað í stað þess að leggjast í baðkarið.
—
Jul 15, 2008
- Sturtan þarf ekki nema þriðjung vatnsins sem annars þarf! Vertu ekki lengi í sturtunni og notaðu tímamæli í næsta skipti!
-
Kauptu sturtuhausa með hægu flæði til að draga úr vatnsnotkuninni.
—
Jul 15, 2008
- Vatnsúðinn verður fínni, og þótt minna vatn þurfi virðist eins og flæðið sé meira.
-
Dragðu úr vatnsnotkun heimilisins.
—
Jul 15, 2008
- Ef loftblandari (aerator) er settur á stútinn virðist straumurinn aukast en það er vegna þess að loft blandast vatninu og streymið minnkar við það. Vatnsmagnið getur minnkað um 30 - 40%.
-
Minnkaðu rýmið í vatnskassann!
—
Jul 15, 2008
- Minnkaðu magnið sem kemur úr vatnskassanum: Settu í hann einhvern hlut svo að hann taki minna vatn. Ef þú ætlar að kaupa nýtt klósett: Hugleiddu að velja vatnssparandi tæki með tvennskonar skolun.
-
Ef vatnskassinn lekur geta allt að 200 lítrar farið til spillis á dag.
—
Jul 15, 2008
- Það samsvarar því að sturta niður 50 sinnum. Athugaðu hvort kassinn lekur.
-
Ekki setja uppþvottavélina í gang fyrr en hún er orðin alveg full.
—
Jul 15, 2008
- Þá þarf í rauninni minna vatn en ef þvegið er upp með höndunum.
-
Veldu umhverfismerktar vörur!
—
Jul 15, 2008
- Ef þú ætlar að kaupa nýja þvottavél: Veldu vél sem þarf lítið rafmagn og vatn. Skoðaðu vefsvæði Eco-Label en þar eru listar yfir orkusparneytin heimilistæki.
-
Virðist liggja alveg í augum uppi, en
—
Jul 15, 2008
- Sparaðu vatn með því að þvo sjaldnar! Ekki þvo fyrr en vélin er full og þvoðu ekki fatnað nema hann sé í raun óhreinn. Ekki er víst að þvo þurfi flík sem búið er að fara í einu sinni.
-
Ekki sturta
—
Jul 15, 2008
- niður baðmullarhnoðrum, pappírsþurrkur fyrir andlitsfarða o.þh. Allt slíkt á heima í ruslafötu baðherbergisins.
-
Vökvaðu garðinn seint á kvöldin eða snemma á morgnana.
—
Jul 15, 2008
- Þá er svalara, minna gufar upp af vatni og gróðurinn fær meira.
-
Í gegnum garðslönguna fara allt að 18 lítrar á mínútu.
—
Jul 15, 2008
- Notaðu í staðinn venjulega garðkönnu. Þannig sparast mikið vatn. Einnig er hægt að setja skammtara með gikk á slönguendann og stýra þannig flæðinu.
-
Betra er að metta á réttum stöðum en að úða allt!
—
Jul 15, 2008
- Vökvaðu ræturnar tvisvar á viku í stað þess að úða daglega. Þá gufar miklu minna upp, en gróðurinn fær meira vatn.
-
Ef þú slærð sjaldnar þarf minna vatn.
—
Jul 15, 2008
- Hátt gras eflir vöxt rótanna og veitir jarðveginum skugga sem dregur úr uppgufun.
-
Safnaðu regnvatninu
—
Jul 15, 2008
- og notaðu það til að vökva garðinn og sparaðu í staðinn dýrmætt drykkjarvatn úr krananum. Gáðu til veðurs áður en þú vökvar; kannski rignir bráðum.
-
Leggðu moð að rótum plantna, úti og inni.
—
Jul 15, 2008
- Þannig er illgresi bægt frá; verndaðu plönturnar með því að veita jarðveginum svala. Þannig minnkar þú uppgufunina og þjappaðu jarðveginum minna saman. Beittu ímyndunaraflinu og notaðu efni eins og: smáhnullunga, börk, möl, kókoshnetur, greniköngla, glerkúlur, brotið leirtau, klippt gras eða visnað lauf. Forðastu samt að leggja moð of vel upp að leggjum plantna svo að þeir fúni ekki yfir veturinn.
-
Búðu til smátjörn í garðinum til að auka líffræðilegan fjölbreytileika.
—
Jul 15, 2008
- Ýmis gróður og smádýr þrífast í og við smátjarnir.
-
Notaðu eins lítið af illgresis- og skordýraeyði og hægt er.
—
Jul 15, 2008
- Slík efni drepa margar gagnlegar lífverur, bæði plöntur og dýr sem þú vilt sennilega ekki losna við, einkum ef þessi efni komast í smátjarnir og læki. Til eru margir valkostir sem ekki eru hættulegir villtum dýrum.
-
Í varnarefnum eru hættuleg og heilsuspillandi efni.
—
Jul 15, 2008
- Leifar af varnarefnum og skordýraeitri geta borist inn í híbýli. Yfirvöld upplýsa hvar er tekið við afgöngum til eyðingar.
-
Eyddu illgresi með sjóðandi vatni eða brenndu það.
—
Jul 15, 2008
- Illgresi sem sjóðandi vatni hefur verið hellt á verður brúnt eftir nokkrar klukkustundir og deyr. Engin eiturefni verða eftir og börnum er strax óhætt að leika sér á staðnum.
-
Garðar við íbúðarhús auka mjög líffræðilegan fjölbreytileika í borgum og bæjum.
—
Jul 15, 2008
- Í görðum er skjól, næring og annað sem þarf fyrir ýmis smádýr. Meira gagn og ánægju má hafa af garðinum með því að gróðursetja berjarunna og plöntur sem bera blóm. Tré, runnar og annar gróður veita skordýrum, köngulóm og öðrum hryggleysingjum skjól og næringu.
-
Gefðu gott fordæmi!
—
Jul 15, 2008
- Hvettu fólk í þínu bæjarfélagi til að koma upp svæðum með líffræðilegum fjölbreytileika. Hvernig? Margir garðar hlið við hlið geta myndað tengingu við skemmtigarða og græn svæði.
-
Hafðu hundinn í bandi svo hann hlaupi ekki frá þér og spilli náttúrunni.
—
Jul 15, 2008
- Sérstök þörf er á aðgát þar sem fuglar verpa á vorin og fram á sumar; einnig þar sem þeir leita sér matar eða hafa næturstað á veturna. Þetta ber að hafa í huga þegar hundar eru viðraðir!
-
Fleygðu á réttum stöðum, helltu engu niður!
—
Jul 15, 2008
- Allt sem fer í niðurfall,vask eða salerni getur fyrr eða síðar borist úti í á eða sjó! Fargaðu aldrei vökvum eins og olíu eða feiti, eða hættulegum vökvum eins og leysiefnum og málningarafgöngum, með því að hella þeim í niðurfall. Í staðinn á að safna þessu í einn kassa og farga um leið og öðru sorpi. Hafið vökvana í upphaflegum ílátum til að afstýra hættulegum efnahvörfum. Þá er auðveldara að bera kennsl á þá við sorphirðu. Farðu með það sem á að skila á ákveðna staði.
-
Kauptu ekki timbur+B49 frá ólöglegum seljendum!
—
Jul 15, 2008
- Ólögleg verslun með timbur frá hitabeltislöndum stuðlar að eyðingu regnskóga. Margar byggingarvöruverslanir selja nú vörur sem vottað er að séu löglegur og sjálfbær. Næst þegar þú kaupir timbur skaltu spyrja um merki eins og Forest Stewardship Council (FSC).
-
Á ferðalögum á fjarlægum slóðum þarf að sýna aðgát við kaup minjagripa.
—
Jul 15, 2008
- Verslun með útskorna trémuni, rauða kóralla eða skrautmuni með loðskinnum eða fjöðrum o.fl. er oft háð opinberu eftirliti og ferðamenn þurfa leyfi til að fara með þá til heim. Kynntu þér reglur. Strangar reglur gilda um útflutning villtra dýra og líkur eru á að minjagripir verði gerðir upptækir.
-
Gefðu ímyndunaraflinu lausan tauminn og búðu til náttúrlegt svæði í garðinum!
—
Jul 15, 2008
- Auk þess sem þú og fjölskyldan fáið náttúrlegt afdrep laðar það að fiðrildi svo og önnur skordýr og smádýr.
-
Sýna þarf þjóðgörðum stuðning!
—
Jul 15, 2008
- Farðu í þjóðgarða og önnur slík svæði til að sýna að þú sért hlynntur stofnun þeirra, því sem þar er gert til að vernda náttúruna og jafnvel stækkun þeirra. Mundu að sýna umgengni sem er til fyrirmyndar.
-
Sparaðu vatn: láttu líða lengra milli þess sem þú slærð.
—
Jul 15, 2008
- Leyfðu grasinu að spretta vel áður en þú slærð það. Þannig eflir þú rótarvöxtinn. Þá er líka hugsanlegt að grasið sái sér sjálft. Ef þú býrð til stíg í flötina með því að slá grasið sést að það er ekki ofvaxið sökum slóðaskapar.
-
Viðarbútur sem fúnar er dæmi um líffræðilegan fjölbreytileika!
—
Jul 15, 2008
- Með því að flytja burt visinn trjágróður, kann náttúrlegur hlekkur í fæðukeðju skóglendis að hverfa. Ef visinn trjágróður vantar minnkar líffræðilegur fjölbreytileiki um u.þ.b. 20%. Ef þú fjarlægir dauðan trjágróður úr garðinum, kann mikill fjöldi hryggleysingja og sveppagróðurs að hverfa úr honum.
-
Til að afstýra uppblæstri er gott að fjölga B68plöntum til að bæta við rótarkerfum.
—
Jul 15, 2008
- Stundum er bætt við lofnarblómum. Þau hafa djúpar rætur sem mynda þétt net er festa jarðveginn.
-
Séð úr fjarska...
—
Jul 15, 2008
- Þótt þú hafir yndi af villtum dýrum skaltu gæta þess að koma ekki of nærri þeim og gefa þeim ekki. Mundu að ef þú snertir hreiður, bæli eða greni, skilur þú eftir lykt sem fælir e.t.v. foreldrana endanlega frá. Í stað þess að snerta skaltu reyna að komast að fleiru um dýrin og jafnvel finna ráð til að vernda þau betur.
-
Vertu með í næstu fuglatalningu í landi þínu.
—
Jul 15, 2008
- Auk þess sem þú hjálpar til við fuglaskoðunarátak lands þíns, lærir þú að þekkja ýmsar tegundir og nýtur útiverunnar.
-
Varast ber að skilja eftir rusl eða annað í gönguferðum utan þéttbýlis.
—
Jul 15, 2008
- Ef þú finnur rusl sem aðrir hafa skilið eftir, skaltu sýna ábyrgðartilfinningu og hirða það.
-
Veldu 'lífrænan' eldisfisk ef þess er kostur, t.d. silung og lax.
—
Jul 15, 2008
- Fiskur sem ekki er 'lífrænt' alinn þarf mikið magn kemískra efna og fúkkalyfja sem geta haft slæm áhrif á önnur dýr í fæðukeðjunni. Hafa ber í huga að til að ala 3 kílógramma lax þarf að veiða 15 kg af fiski úti í náttúrunni til að fá mjöl og lýsi.
-
Fagnaðu fæðingu í fjölskyldunni með því að gróðursetja tré.
—
Jul 15, 2008
- Auk þess sem ljúfar minningar tengjast trénu, veitir það skugga og skjól, myndar lítið vistkerfi og gefur frá sér súrefni.
-
Kynntu þér sérkenni flóru og fánu þíns byggðarlags.
—
Jul 15, 2008
- Lífverur sem ógn steðjar að eða eru í útrýmingarhættu eru til í tegundum vistkerfa, smáum og stórum. Kynntu þér hvaða tegundir í þínu umhverfi standa höllum fæti og legðu þitt af mörkum til að vernda búsvæði þeirra.
-
Sértu á ferð þar sem eru lón eða kóralrif: Ekki snerta eða stíga á kóralla.
—
Jul 15, 2008
- Þegar þú ert að kafa: Brjóttu ekki af kóral til að hafa til minja. Kóralrif eru mjög mikilvæg og þeim fækkar.
-
Búðu til lítið vistkerfi
—
Jul 15, 2008
- í garðinum þínum með því að hlaða upp lurkum þar sem lítið ber á þeim. Þar verður afdrep fyrir ýmsar lífverur. Ef þú hálfgrefur lurkana myndast rétt umhverfi fyrir lífverur sem kunna vel við sig í fúnum viði. Grjóthrúga veitir skordýrum og köngulóm gott skjól.
-
Búðu til moldunaraðstöðu!
—
Jul 15, 2008
- Settu í gang moldunaráætlun og bjóddu nágrönnum eða jafnvel skólanum í hverfinu að koma með lífrænan úrgang til þín. Þannig fæst náttúrlegur áburður sem hjálpar jarðveginum að halda í sér lofti og vatni.
-
Vissir þú þetta?
—
Jul 15, 2008
- Sumar pappírs-/pappavörur (t.d. pappírsvasakllútar, hand-/munnþurkur og eggjabakkar) er hægt að molda. Pappírstrefjarnar örva loftun moldumassans og hjálpa örverum sem flýta fyrir rotnun.
-
Hugsaðu þig vel um áður en þú kaupir gæludýr eða dýr frá fjarlægu landi.
—
Jul 15, 2008
- Skriðdýr, fuglar og fiskar eru oft tekin úti í nátturunni. Svartur markaður gæludýra frá fjarlægum löndum hefur stórskaðað lífstofna ákveðinna tegunda og er enn sá hluti gæludýramarkaðarins sem er í hvað örustum vexti.
-
Langi þig í óvenjulegt frí: Því ekki sjálfboðaliði við náttúruvernd.
—
Jul 15, 2008
- Margar ferðaskrifstofur bjóða slíkar ferðir. Þú færð færi á að vinna með mjög áhugasömum einstaklingum og að gera eitthvað gott fyrir umhverfismálin.
-
Settu upp grænmetis-garð, jafnvel í kössum á gluggakistu.
—
Jul 15, 2008
- Þú færð ferskt og gómsætt grænmeti sem er laust við varnarefni.
-
Taktu þátt í hreinsunarstarfi í hverfinu þínu.
—
Jul 15, 2008
- Á hverju ári á Alþjóðlega umhverfisdeginum gera skólar og umhverfissamtök um allan heim umhverfisátak. Vertu með! Fyrir utan það að þú hjálpar til við að hreinsa og fegra hverfið sem þú býrð í, kemst þú að ýmsu merkilegu um dýr og gróður sem þrífst þar.
-
Langar þig að bæta við plöntum í garðinum?
—
Jul 15, 2008
- Farðu að með gát þegar þú kaupir fyrir garðinn. Margar plöntur ætlaðar til skrauts hafa reynst vágestir. Sama á við um sum framandi dýr. Vertu viss um að þú sért ekki að kaupa framandi plöntu sem kann að valda usla í umhverfi þínu.
-
Kauptu ný matvæli framleidd í nágrenninu
—
Jul 15, 2008
- annaðhvort beint frá bónda eða ávaxta-/grænmetismarkaði á staðnum. Búvörur viðkomandi árstíðar eru hollar og umhverfisvænar. Kauptu vörur úr nágrenninu sem ekki þurfa umbúðir. Þannig dregur þú úr mengun og sorpi.
-
Veldu 'lífræn' matvæli ef þess er kostur.
—
Jul 15, 2008
- Við ræktun 'lífrænna' matvæli eru ekki notuð samsett, kemísk varnarefni, aðeins minna losnar af gróðurhúsalofttegundum og yfirleitt er meiri möguleiki á líffræðilegum fjölbreytileika við slíka ræktun.
-
Gættu þess að borða ekki of mikið kjöt!
—
Jul 15, 2008
- Ef þú neytir kjöts ættir þú að hugleiða að minnka neysluna og leggja meiri áherslu á gæði en magn. Kjötframleiðsla krefst feikimikillar orku, ekki eingöngu vegna dýraeldis og fóðurflutninga, heildur einnig vegna hitunar, lofthitunar og lýsingar á hinum gríðastóru búum. Þú hjálpar umhverfinu ef þú borðar minna kjöt og það er einnig gott fyrir heilsuna. Best er að kaupa kjöt hjá bændum í grenndinni og helst hjá þeim sem eru með 'lífrænan' búrekstur.
-
Víða eru serví+B106ettur gefnar en það réttlætir ekki sóun.
—
Jul 15, 2008
- Láttu eina eða tvær duga, ekki taka fleiri. Vertu hófsamur og trén munu þakka þér fyrir það!
-
Neyttu ávaxta/grænmetis sem best er hæft til neyslu á hverjum tíma.
—
Jul 15, 2008
- Slíkur matur smakkast betur, er hollari og ræktun hans hefur ekki spillt umhverfinu eins mikið.
-
Borðaðu ekki of mikið af nautakjöti.
—
Jul 15, 2008
- Framleiðslu nautakjöts fylgir þrisvar sinnum meira af gróðurhúsalofttegundum heldur en framleiðslu fuglakjöts eða svnakjöts.
-
Neysla mjólkurafurða: Hafðu aðgát.
—
Jul 15, 2008
- Framleiðslu smjörs, osta og annarra feitra mjólkurvara veldur mikilli losun gróðurhúsalofttegunda og auk þess ofauðgun grunnvatns, árvatns og hafsvæða. Mundu: Um 70% alls notaðs búlands í veröldinni eru lögð undir skepnuhald.
-
Ekki sóa mat.
—
Jul 15, 2008
- Kauptu aðeins það sem þú þarft í raun og notaðu afganga vel. Þannig getur þú minnkað sóun og dregið úr losun mengandi efna.
-
Kauptu nestisbox.
—
Jul 15, 2008
- Ef þörf krefur skaltu nota svokallaða glæra filmu í stað álpappírs þegar þú útbýrð nesti. Með því að spara umbúðir þarftu ekki að fleygja eins miklu, og það er gott fyrir náttúruna!
-
Ekki gangsetja þvottavél/uppþvottavél fyrr en hún er full.
—
Jul 15, 2008
- Orku- og vatnsnotkunin er sú sama hvort sem vélin er full eða tóm.
-
Láttu heitan mat kólna áður en hann fer inn í kæliskápinn
—
Jul 15, 2008
- og þíddu mat úr frystinum í kæliskápnum. Þannig sparast fé og rafmagnsreikningurinn lækkar. Gættu þess líka að hafa kæliskápshurðina ekki opna lengur en þú þarft.
-
Slepptu sólaljósinu inn í íbúðina.
—
Jul 15, 2008
- Minnkaðu CO2 losunina og lækkaðu rafmagnsreikninginn með því að nota dagsljósið eins vel og hægt er. Hugleiddu að hafa veggi, gólf og loft í ljósum litum. Speglar er líka heppilegir því þeir endurkasta dagsljósi.
-
Hve oft skoðar þú fjölskyldumyndirnar?
—
Jul 15, 2008
- Í stað þess að prenta út stafrænar ljósmyndir er skynsamlegt að vista þær í tölvunni og senda þær í tölvupósti.
-
Farðu í sturtubað í stað þess að leggjast í baðkarið!
—
Jul 15, 2008
- Þannig er hægt að minnka vatnsnotkunina um þriðjung! Stöðvaðu flæðið meðan þú ert að sápa þig og vertu ekki lengi í sturtunni. Í sturtubað þarf 30 til 80 lítra en fyrir bað í baðkari þarf 150 til 200 lítra. Notaðu sturtuhausa sem skammta lítið flæði og kauptu ekki aflsturtu (power shower).
-
Færð þú ruslpóst inn um bréflúguna?
—
Jul 15, 2008
- Að láta taka nafn sitt af póslista er eins einfalt og að senda bréf, póstkort, tölvupóst eða smella á reit á eyðublað á netinu. Þannig er hægt að bjarga mörgum trjám og spara mikið vatn á hverju ári. Einnig er hægt að setja eftirfarandi á póstkassann: ‘Engan ruslpóst, takk fyrir’.
-
Þarf að fjarlægja kalkskánir?
—
Jul 15, 2008
- Í stað kemískra efna er hægt að nota edik til að losa kalkskánir af flísum, krönum, kötlum o.fl.
-
Kauptu vistvænt þvottaefni fyrir uppþvottavélina.
—
Jul 15, 2008
- Það leysist að mestu leyti upp í náttúrinni, mengar vatnsbúsvæði minna, og er alveg jafn gott hreinsiefni eins og þau sem menga meira. Veldu vistvænt þvottaefni fyrir uppþvottavélar,eins og t.d. það sem er merkt með Evrópublóminu (sjá www.eco-label.com til að finna hvað á við í þínu landi).
-
Hafnaðu pappírshandþurrkum!
—
Jul 15, 2008
- Moppa eða svampur dugir jafvel betur en pappír til að hreinsa það sem fer niður. Dragðu úr sóun og hjálpað trjánum.
-
Ætlar þú að endurbæta íbúðina/húsið?
—
Jul 15, 2008
- Reyndu að finna aðferðir til að draga úr orkunotkun við hitun og kælingu, t.d. með því að þétta hurðir og glugga, skipta um glugga eða fá einangrunargler. Nú á dögum er hægt að byggja 'kolefnisjöfnuð' hús.
-
Borgaðu reikningana á netinu.
—
Jul 15, 2008
- Sparaðu pappírinn og jafnframt orkuna sem fer í að senda þá til þín í pósti.
-
Hafnaðu pappírs- og plastpokum!
—
Jul 15, 2008
- Plastpokarnir sem þú notar geta enst í 1 - 1000 ár í náttúrunni. Fáðu þér ekki nýjan poka í hvert skipti sem þú verslar, heldur poka sem má nota hvað eftir annað eða baðmullarpoka. Afþakkaðu pappírs- og plastpoka.
-
Veldu rafeindatæki án eiturefna!
—
Jul 15, 2008
- Í mörgum rafeindatækjum eru hættuleg eiturefni sem skaða nattúruna ef þeim er fleygt. Áður en þú kaupir rafeindatæki skaltu kynna þér á eftirtöldum ESB vefsvæðum hvaða fyrirtæki bjóða vistvænan búnað:
-
Ætlar þú að kaupa nýjan prentara?
—
Jul 15, 2008
- Við kaup á prentara þarf að kanna hvort hann tekur hylki sem hægt er að endurfylla. Það er mjög hagkvæmt og vistvænt. Ef þetta á ekki við um prentarann þinn: Mundu að fara með notuðu hylkin til seljandans svo hann komi þeim í endurvinnslu.
-
Veldu hleðslurafhlöður, ekki einnota rafhlöður.
—
Jul 15, 2008
- Þú sparar til lengri tíma litið. Þú getur einnig keypt sólknúin hleðslutæki ef þig langar til að spara enn meiri orku.
-
Hafnaðu einnotavörum!
—
Jul 15, 2008
- Við notum einnota vörur í sífellt auknum mæli. Dæmi: Rakvélablöð, hand- og munnþurrkur úr pappír, afþurrkunarklútar, bleyjur, plastpokar, jafnvel einnota myndavélar. Ekki er nóg með að þessar vörur kosti meira til lengri tíma litið, þeim fylgir meiri hráefna- og orkunotkun heldur en því sem hægt er að nota aftur og aftur.
-
Kauptu rafeindatæki sem þurfa lítið rafmagn.
—
Jul 15, 2008
- Hægt er að miða við orkumerkingar (A++, A+, A, B) og Energy Star merki fyrir rafeindatæki. Þannig sparar þú rafmagn til lengri tíma litið. Til að sjá hvaða búnað hér er um að ræða, skaltu fara á vefsvæði ESB: www.eu-energystar.org.
-
Lokaðu hringnum!
—
Jul 15, 2008
- Kauptu tæki sem framleidd eru úr endurunnu efni. Hver annar ætti að kaupa allar vörurnar sem unnar eru úr því sem þú fleygir í tunnuna?
-
Ef þú ætlar að búa til góða máltíð: Kauptu Fairtrade!.
—
Jul 15, 2008
- Fairtrade tryggir að framleiðendur í Suðurlöndum fá réttlátar greiðslur. Einnig eru til margar vörur með Fairtrade vottun sem jafnframt eru 'lífrænar'.
-
Ekki gleyma kaupmanninum á horninu.
—
Jul 15, 2008
- Nýir stórmarkaðir í hverfinu geta eyðilagt viðskiptin fyrir litlu verslununum. Mengun og umferð væri miklu minni ef fólk verslaði við hverfisbúðir í stað þess að aka langar leiðir til verslanamiðstöðva utan borganna.
-
Kauptu pottaplöntur sem endast!
—
Jul 15, 2008
- Ef þig langar að gefa blóm skaltu kaupa pottaplöntu hjá blómabónda í grenndinni. Mikið af afskornum blómum kemur úr gróðurhúsum í miklum fjarska. Auk flutningskostnaðar getur verið mikill félagslegur og umhverfislegur kostnaður, Dæmi: Í Kólumbíu er notað gífurlegt magn af mengandi varnarefnum í blómarækt, og í Kenya þarf mjög mikið vatn í garðrækt sem minnkar vatn til annarra nota. Annar valkostur; Biddu blómasalann um blóm frá Fairtrade eða 'lífrænt ræktuð' blóm.
-
Kauptu tónlist á netinu og mengaðu minna!
—
Jul 15, 2008
- Þú sparar þér ferð í tónlistarbúð og minnkar notkun geisladiska, plastboxa, umbúða, og að auki sparast peningar.
-
Kauptu það sem þig vantar, ekki það sem þig langar í!
—
Jul 15, 2008
- Ef allir jarðarbúar hefðu evrópskan lífsstíl þyrftum við þrjár jarðir til að uppfylla allar þarfir þeirra. Gættu þess að láta ekki neysluhyggju ná tökum á þér. Búðu til lista yfir það sem þú þarft í stað þess að taka í búðinni ónauðsynlega hluti sem þú heldur að þú þurfir. Þannig sparar þú einnig fé.
-
Uppfærðu tölvuna!
—
Jul 15, 2008
- Hjá EEA hafa skrifstofutölvurnar fengið minnisstækkun sem lengir líf þeirra um 2 ár. Mikið rafeindasorp sparaðist.
-
Losaðu þig við lyfjaúrgang með réttum hætti!
—
Jul 15, 2008
- Urðunarstaðir eða skólplagnir eru ekki réttu förgunarstaðirnir fyrir gömul lyf. Skilaðu þeim í staðinn á sérstökum móttökustöðvum eða til lyfjabúða.
-
Fleygðu ekki prentaraduftshylkjunum.
—
Jul 15, 2008
- Endurnýttu þau í staðinn! Flestar ritfangaverslanir taka á móti gömlum, tómum hylkjum þegar ný eru keypt.
-
Þarftu að losna við fyrirferðarmikinn úrgang?
—
Jul 15, 2008
- Þegar þú þarft að fleygja stórum hlutum skaltu fara með þá á móttökustöðva sorps eða hafðu samband við viðeigandi fyrirtæki til að losna við þá. Fagmenn munu hluta í sundur og jafnvel endurnýta hlutina. Hluti eins og kæliskápa og ýmis raftæki verður að endurnýta vegna mengunarhættu. Þú getur einnig notað netið eða dagblöðin til að selja hluti sem ennþá eru einhvers virði.
-
Ekki fleygja rusli á almannafæri!
—
Jul 15, 2008
- Gættu þess að skilja aldrei eftir sorp á götunni, í náttúrunni og sérstaklega ekki nærri niðurföllum. Það getur endað í skolphreinsistöð og ofgert hreinsibúnaðinum. Hagnýttu þér sorpílát á almannafæri. Þau eru allsstaðar og eru ætluð til einmitt þessara nota.
-
Þarftu ný gleraugu?
—
Jul 15, 2008
- Um 10 milljón pör nothæfra gleraugna fara í ruslið árlega í Evrópu og Norður-Ameríku. Þau geta komið fátæku fólki í þróunarlöndunum að gagni. Flestir gleraugnasalar taka nú orðið við gömlum gleraugum. Losaðu þig við þau gömlu og gefðu þeim framhaldslíf.
Document Actions
Deila með öðrum