Ef þig langar að gefa blóm skaltu kaupa pottaplöntu hjá blómabónda í grenndinni. Mikið af afskornum blómum kemur úr gróðurhúsum í miklum fjarska. Auk flutningskostnaðar getur verið mikill félagslegur og umhverfislegur kostnaður, Dæmi: Í Kólumbíu er notað gífurlegt magn af mengandi varnarefnum í blómarækt, og í Kenya þarf mjög mikið vatn í garðrækt sem minnkar vatn til annarra nota. Annar valkostur; Biddu blómasalann um blóm frá Fairtrade eða 'lífrænt ræktuð' blóm.
Document Actions
Deila með öðrum