næsta
fyrri
atriði

Einstaklingsvernd þegar kemur að vinnslu stofnana Bandalagsins á persónuupplýsingum er stjórnað af reglugerð (EB) 45/2001 Evrópuþingsins og ráðsins frá 18. desember 2000.

Hér á eftir veitum við nokkrar almennar upplýsingar. Sérstakar upplýsingar um vinnslu sem tengjast þessari vefsíðu er að finna í skránni okkar.

Vefsíða Umhverfisstofnunar er mikilvægasta samskiptatækið okkar. Hér miðlum við upplýsingum um störf okkar, svo sem gögnum og kortum, kynnum vísbendingar og færum rit okkar um umhverfi Evrópu til almennings og sérfræðinga.

Sum þjónusta sem er í boði á vefsíðunni krefst úrvinnslu persónuupplýsinga notandans. Í slíkum tilvikum eru tenglar tiltækir síðunum sem beina þér að tilteknum upplýsingum um vinnslu sem er að finna í viðeigandi gagnaverndarskýringum í skránum okkar.

Hér fyrir neðan er almennt yfirlit yfir þær leiðir sem þessi vefsíða vinnur úr persónugögnum notandans meðal annars með því að nota vafrakökur og samfélagsmiðla.

Persónugögn þín og vefsíðan okkar

  • Umhverfisstofnun Evrópu safnar aðeins persónuupplýsingum þínum að því marki sem nauðsynlegt er til að uppfylla tilgang í tengslum við verkefni okkar sem stofnun Evrópusambandsins (sem mælt er fyrir um í reglugerð (EB) nr. 401/2009).
  • Við endurnýtum ekki upplýsingarnar í öðrum tilgangi en þeim sem tilgreindur er;
  • Við gerum ráðstafanir til að tryggja að gögnin þín séu uppfærð og unnin á öruggan hátt.
  • Við vissar aðstæður, sem lýst er í lögum, megum við birta upplýsingar þínar til þriðja aðila, (svo sem Evrópuskrifstofunni um aðgerðir gegn svikum, Endurskoðunarréttinum eða löggæsluyfirvöldum), ef nauðsynlegt er og í réttu hlutfalli við löglegan og takmarkaðan tilgang;
  • Við munum aldrei birta persónuupplýsingar þínar til beinnar markaðssetningar;
  • Þú hefur rétt á að fá aðgang að persónulegum upplýsingum þínum, til að leiðrétta þær og rétt til að leita til Evrópsku persónuverndarstofnunarinnar (https://edps.europa.eu) hvenær sem er ef þú telur að verndun á persónuupplýsingunum þínum hafi verið brotin;
  • Við geymum ekki persónulegar upplýsingar þínar lengur en nauðsynlegt er vegna þeirrar ástæðu sem við höfðum safnað þeim;
  • Hins vegar gætum við geymt upplýsingar þínar lengur í sögulegum, tölfræðilegum eða vísindalegum tilgangi með viðeigandi verndarráðstöfunum.

Réttur þinn þegar unnið er úr persónulegum upplýsingum þínum

Þú átt rétt á að fá að vita þegar Umhverfisstofnunin er að vinna úr persónuupplýsingum þínum.

Þú hefur rétt á að fá aðgang að upplýsingunum og leiðrétta þær án tafar ef þær eru ónákvæmar eða ófullnægjandi.

Þú getur beðið um að láta loka þeim undir ákveðnum kringumstæðum.

Þú getur einnig mótmælt því að það sé unnið úr þeim ef þú heldur að vinnslan sé ósanngjörn og ólögleg og biðja um að gögnunum verði eytt.

Þú getur farið fram á að hluti af ofangreindum breytingum verði sendur til annarra aðila sem hafa fengið aðgang að gögnunum.

Þú átt einnig rétt á að ekki falli undir sjálfvirkar ákvarðanir (sem eingöngu eru teknar af vélum) sem hafa áhrif á þig, eins og það er skilgreint samkvæmt lögum.

Þessi réttindi eru sett fram í 13. til 19. gr. á gildandi reglugerðar um verndun gagna (EB) nr. 45/2001.

Þú getur einnig lesið ‘Yfirlit yfir gagnavernd’ til þess að fá frekari upplýsingar.

Hvernig á að beita verndarréttindum þínum hjá Umhverfisstofnun Evrópu

  • Ef Umhverfisstofnun Evrópu vinnur með persónuupplýsingar þínar og þú vilt nýta persónuverndarrétt þinn skaltu senda okkur skriflega beiðni.
  • Þú getur sent beiðni þína á Umhverfisstofnun Evrópu í lokuðu umslagi eða notað umsóknareyðublað okkar[1].
  • Beiðni þín ætti að innihalda nákvæma lýsingu á þeim gögnum sem þú vilt fá aðgang að.
  • Þú verður að leggja fram afrit af persónuskilríki til að staðfesta auðkenni þitt, til dæmis vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini. Skilríkin skulu innihalda kennitölu, útgáfuland, gildistíma og fullt nafn þitt.
  • Allar aðrar upplýsingar í afriti persónuskilríki (t.d. ljósmynd, persónulýsingar, dagsetning og fæðingarstaður, heimilisfang) verða ekki meðhöndlaðar og má því sverta.
  • Notkun okkar á upplýsingunum í afriti persónuskilríki þíns er takmarkaður: gögnin verða aðeins notuð til að staðfesta auðkenni þitt.
  • Skjalið verður geymt í hámark þrjá mánuði frá dagsetningu móttöku beiðninnar.

 

Vafrakökureglur/upplýsingar um vefsíðunotkun

Hvað eru vafrakökur?

Vafrakökur eru stuttar textaskrár sem sendar eru af vefsíðu og eru geymdar á tæki notanda (eins og tölvu, spjaldtölvu eða síma). 

Vafrakökur eru notaðar fyrir tæknilegar aðgerðir vefsvæðis eða til að safna tölfræði.

Vafrakökur eru einnig venjulega notaðar til að veita persónulegri reynslu fyrir notanda, til dæmis þegar netþjónusta man eftir notandasniðmáti án þess að notandi þurfi að skrá sig inn.

Þegar þú heimsækir vefsíðu okkar gætum við safnað einhverjum gögnum um vafraupplifun þína, svo sem IP-tölu þína, vefsíður Umhverfisstofnunarinnar sem þú heimsóttir, hvenær þú heimsóttir vefinn og vefsíðuna sem þú varst áframsendur frá.

Þessar upplýsingar eru notaðar til að safna samanlagðri og nafnlausri tölfræði með það fyrir augum að bæta þjónustu okkar og auka reynslu notenda.

Hvernig notum við kökur?

Við notum skammtímakökur og langtíma vafrakökur til að endurspegla val notandans á samþykki köku.

Skammtímakökur (einnig þekktar sem minniskökur eða tímabundnar kökur) eru aðeins í skammtímaminni vafrans meðan notandinn er staddur á vefsíðunni. Netvafrar eyða venjulega skammtímakökum þegar notandi lokar vafranum. Skammtímakökur eru vistaðar tímabundið í vafra notanda og eini tilgangurinn þeirra er að endurspegla val notandans að ekki leyfa langtíma vafrakökur.

Ef þú gefur leyfir fyrir því, notar vefsíðan einnig langtíma vafrakökur til að vista val notandans, og sækja hana í næstu heimsóknum. Umsóknarkökur, sem innihalda jákvætt svar notandans við notkun á vafrakökum, verður geymt í vafra notandans í 11 mánuði. Eftir að þetta tímabil rennur út verður notandinn beðinn um að gefa samþykki sitt aftur.

Varðandi tölfræði treystir Umhverfisstofnun Evrópu á Google Analytics, vefgreiningarþjónustu frá Google, Inc. ("Google"). Google Analytics notar vafrakökur til að hjálpa tæknimönnum Umhverfisstofnunarinnar að greina hvernig notendur nota síðuna. Upplýsingarnar sem koma af vafrakökunum um notkun þína á vefsvæðinu verða sendar og geymd af Google á netþjónum sínum. Til að vernda friðhelgi þína fjarlægir Analytics síðasta hluta IP-tölu þinni fyrir notkun og geymslu. Google notar upplýsingarnar sem fengnar eru með kökum til að meta notkun þína á vefsíðunni, til að búa til skýrslur um vefsíðunotkun fyrir rekstraraðila vefsíðna og til að bjóða upp á aðra þjónustu í tengslum við vefsíðustarfsemi og netnotkun. Google kann einnig að miðla upplýsingunum til þriðja aðila þegar slíkt er skylt samkvæmt lögum eða þar sem slíkir þriðju aðilar vinna upplýsingarnar fyrir hönd Google. Google mun ekki tengja IP töluna þína við önnur gögn sem Google geymir. Þú getur neitað að nota smákökur með því að velja viðeigandi stillingar í vafranum þínum, athugaðu þó að ef þú gerir slíkt kann að vera að þú getir ekki nýtt þér alla virkni vefsíðunnar. Með því að samþykkja smákökur þegar þú vafrar á þessari vefsíðu veitir þú samþykki fyrir vinnslu Google á gögnum um þig með þeim hætti og tilgangi sem nefnt er að ofan.

Hvernig á að stjórna kökum

Þú getur stjórnað og/eða eytt kökum ef þú vilt – upplýsingar má finna á aboutcookies.org. Þú getur eytt öllum kökum, sem þegar eru á tölvunni þinni, og þú getur still flesta vafra til þess að koma í veg fyrir að þær séu vistaðar. Ef þú gerir slíkt, hins vegar, kannt þú að þurfa að stilla handvirkt suma valkosti í hvert sinn sem þú kemur á síðuna og sum þjónusta og virkni virkar ef til vill ekki.

Samfélagsmiðlar

Við notum samfélagsmiðla til að kynna starf okkar í gegnum víðtækar rásir sem höfða til samtíma vinnsluhátta.

Opinber samfélagsmiðlar okkar eru skráðir á þessari vefsíðu.

Til dæmis er hægt að horfa á myndbönd frá Umhverfisstofnuninni, sem við hlöðum upp á YouTube síðuna okkar og fylgja tenglum af vefsíðu okkar á Twitter og LinkedIn.

Vafrakökur eru ekki stilltar af samfélagshnöppum okkar til að tengjast þessum þjónustum þegar vefsíðusíðurnar okkar eru hlaðnar á tölvunni þína (eða önnur tæki) eða frá íhlutum frá þeim þjónustum sem eru tengdar á vefsíður okkar.

Hver samfélagsmiðlarás hefur sína eigin stefnu um hvernig þeir vinna með persónuupplýsingar þínar þegar þú ferð á vefsvæði þeira. Ef þú til dæmis kýst að horfa á myndbönd okkar á YouTube, ertu beðinn um að gefa sérstakt samþykki til að taka á móti YouTube vafrakökum; ef þú skoðar virkni okkar á Twitter, verðurðu beðinn um að samþykkja Twitter vafrakökur; það sama gildir um LinkedIn.

Ef þú hefur einhverjar áhyggjur eða spurningar um notkun þeirra á persónuupplýsingum þínum ættir þú að lesa persónuverndarstefnu þeirra vandlega áður en þú notar þessa miðla.

 

 


[1] Hlaða niður UMSÓKNAREYÐUBLAÐINU "RÉTTARÖRYGGI VARÐANDI GANGANOTKUN SAMKVÆMT REGLUGERÐ (EB) Nr 45/2001"

 

 

Permalinks

Geographic coverage

Skjalaaðgerðir